Notkun fótspora

Icelandair Cargo notar fótspor til að bæta notendaupplifun gesta okkar á vefsíðunni. Stefnan hér að neðan fer nánar út í hvernig við gerum það og hvernig fótspor eru notuð og haldið utan um þau.

Hvað eru fótspor?

Fótspor eru agnarsmáar textaskrár sem vefsvæði senda í tölvuna þína eða snjalltæki þegar þú heimsækir svæðið eða síðu, svo hægt sé að muna kjörstillingar þínar, auðvelda greiningu og frammistöðu vefsíðunnar og mæla með efni sem er viðeigandi fyrir þig þegar þú heimsækir síðuna.

Fótsporin auðvelda vefsíðunni, eða öðrum vefsíðum, að vita hvaða tæki þú notar við næstu heimsókn. Fæst fótspor safna upplýsingum sem auðkenna þig, en leitast þess í stað við að sækja öllu almennari upplýsingar eins og hvernig notendur koma á síðuna og nota þær, eða almennar upplýsingar um staðsetningu notanda.

Hvers konar fótspor notar Icelandair Cargo?

Á vefsíðu Icelandair Cargo notum við fótspor til að fylgjast með hvernig vefsíðunni vegnar, munum kjörstillingar þínar fyrir þjónustu eins og val á tungumáli, hvað þú hefur valið að kaupa og aðrar stillingar. Án þessara fótspora mun ýmis þjónusta sem er í boði á þessari vefsíðu ekki virka.

Fótspor okkar má fella í tvo flokka:


Nauðsynleg fótspor eru okkur ómissandi til að vefsíðan virki eins og ætlast er til. Þau gera okkur kleift að bjóða þjónustu eins og að bókunarhluta síðunnar, aðgengi að persónulegu svæði, og verslunar- og greiðslumöguleika. Ef þessi fótspor eru fjarlægð mun notandinn ekki geta nýtt sér þessar þjónustur.
Frammistöðufótspor eru notuð til að fylgjast með afköstum og frammistöðu vefsíðunar og til að merkja sérstaklega hluta vefsíðunnar sem hafa með heimsókn notandans að gera. Þau auðvelda okkur að leiðrétta villur og finna hagkvæmari tengileiðir. Þau safna engum upplýsingum sem hægt er að auðkenna notandann með.
Nafn fótspors
Markmið
JSESSIONID
Nauðsynleg fótspor til að fylgjast með núverandi stöðu kaupferils, bókunarhluta og kjörstillinga notanda. Þessi lotufótspor gera okkur kleift að greina hvernig notendur vafra um vefsíðuna okkar og auðvelda okkur að bæta virni hennar og notendauppifun af henni. 
__utma, __utmb, __utmc, __utmz, _ga, _gid, _dc_gtm_*
Google Analytics og Google Tag Manager - þessi fótspor gera okkur kleift að greina nafnlaust hvernig umferðin flæðir um vefsíðuna okkar. Þau safna engum persónulegum upplýsingum en veita innsýn í hversu vel vefsíðan virkar hjá notendum okkar.
NSC_*
Nauðsynleg fótspor frá Citrix NetScaler til að halda tengingu á milli setu (e. session) vafrans og vefþjóna. Fótsporinu er eytt þegar vafranum er lokað.
Önnur fótspor á Icelandaircargo.is
Við nýtum okkur einnig önnur fótspor á vefsíðu okkar sem koma frá þjónustuaðilum okkar og auglýsendum og falla undir ofangreinda flokka. Fótspor frá þjónustuaðilum eins og Google Analytics gera okkur kleift að fylgjast með umferð um vefsíðu okkar og auðvelda okkur að greina og betrumbæta frammistöðu.

Ef þú býrð í landi innan Evrópusambandsins og vilt fræðast nánar um hvernig auglýsendur nota fótspor sem þessi eða vilt hafa val um að taka ekki við þeim, farðu þá á Your Online Choices.

Búir þú hinsvegar í Bandaríkjunum og vilt kynna þér fótspor nánar, heimsæktu þá Your Ad Choices.

Hvernig get ég lokað á fótspor?

Þú getur lokað á notkun fótspora í stillingum vafrans sem þú ert að nota til að skoða þessa vefsíðu. Í flestum vöfrum er að finna leiðbeiningar um hvernig hægt er að slökkva á fótsporum og á AboutCookies.org er að finna ítarlegar upplýsingar um hvernig hægt er að hafa umsjón með fótsporum í flestum tegundum vafra.